
síðan 2015
Einfalt ferli
Skildu bílinn eftir í öruggum höndum hjá Carpark. Við sjáum um að koma þér á flugvöllinn á réttum tíma og sækjum þig svo aftur þegar þú lendir. Skutluþjónusta okkar er opin allan sólarhringinn – alltaf til taks þegar þú þarft á henni að halda.
Mættu til okkar
Komdu á skrifstofu okkar á þeim tíma sem þú bókaðir. Ef þú bókar með stuttum fyrirvara biðjum við þig um að hringja í síma 588-9999 að minnsta kosti 20 mínútum áður en þú mætir.
Skildu bílinn eftir hjá okkur
Bíllinn þinn er geymdur á upplýstu og vöktuðu svæði allan tímann. Á meðan þú ert í fríinu getum við líka séð um bón eða aðra aukaþjónustu ef þess er óskað – allt á sama stað.
Sæktu farangurinn þinn
Gefðu þér góðan tíma til að sækja töskurnar þínar og fara í gegnum tollinn. Við erum til taks þegar þú ert tilbúin(n).
Hringdu í okkur í síma 588-9999
Um leið og þú ert komin(n) með farangurinn hringir þú í okkur. Við sendum bílinn strax af stað til að sækja þig við brottfararhliðið.
Bíllinn þinn er í öruggum höndum
Svæðið okkar er upplýst og vaktað með öryggismyndavélum allan sólarhringinn. Bíllinn þinn hreyfist ekki úr stað frá því að þú leggur honum og þar til þú sækir hann aftur, nema um annað sé samið.
Öll þjónusta á einum stað
Við bjóðum upp á fjölbreytta aukaþjónustu á meðan þú ert í burtu – svo sem þvott, bón og fleira. Öll þjónusta fer fram á okkar örugga svæði og við færum bílinn þinn aldrei út fyrir svæðið nema bókunin þín krefjist þess.
Skutla á vaktinni 24/7/365
Við erum alltaf til staðar, alla daga ársins, óháð því hvenær þú flýgur. Hringdu í okkur í síma 588-9999 og við mætum á svæðið innan fárra mínútna.
Finndu okkur

Kæru fastakúnnar
Bættu CarPark við heimaskjáinn til að fá skjótan aðgang að bókunum þínum, rauntímauppfærslum og þjónustu — án þess að fara í App Store.

Hvað segja viðskiptavinir okkar
Við leggjum metnað okkar í að veita persónulega og góða þjónustu. Hér er reynsla nokkurra sem hafa geymt bílinn hjá okkur.
Frábær þjónusta þegar maður er að ferðast með mikið af dóti og börn. Við keyrðum beint að skrifstofunni, settum farangurinn yfir í skutluna og vorum komin í flugstöðina fimm mínútum síðar. Miklu þægilegra en að labba langt með krakkana.
– Sigríður
Reykjavík
Hef notað Carpark nokkrum sinnum og þetta klikkar aldrei. Þeir voru mættir að sækja mig um leið og ég labbaði út úr flugstöðinni eftir lendingu. Engin bið og bíllinn var klár. Mæli hiklaust með þessu.
– Arnar
Kópavogur
Það var svo dásamlegt að koma úr hitanum erlendis beint í þrifinn og heitan bíl sem beið manns. Ég lét bóna bílinn á meðan ég var úti og hann leit út eins og nýr. Örugg og góð þjónusta.
– Helga
Við skutlum þér að flugstöðinni
Einn af starfsmönnum okkar keyrir þig að brottfararhliði flugstöðvarinnar. Þú getur hallað þér aftur og byrjað ferðalagið strax.
Við keyrum þig aftur að bílnum
Við hittumst á sama stað og við skutluðum þér. Við keyrum þig beint að bílnum þínum svo þú getir haldið ferðinni áfram heim á leið.
Akureyri